6.8.2007 | 18:50
enn ein sem er löt
Okei Okei.......
Ég er virkilega löt við að skrifa hér, málið er bara að þegar þú ert heima allan daginn þá gerist ekkert spennandi.
Nei ég er ekki atvinnulaus, ég er í sjúkrafríi úr vinnunni, ég nenni sko ekki að útskýra afhverju hihi..... Það tekur alltof langan tíma .
Rakel er byrjuð í skóladagheimilinu og Róbert í leikskólanum, það er gífurlegur munur. Þau voru að gera mömmu sína frekar pirraða með öllu rifrildinu sín á milli. Greyin voru komin með þokkalega leið á hvortöðru .
Ég held að þessi leti sé eitthvað smitandi þessa dagana og vikurnar og ég vona að allir og ég líka rífum okkur upp úr þessu í nálægðri framtíð
Ha det på badet, din gamle sjokolade. Ser deg i kveld din gamle sjokomell.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.7.2007 | 12:44
Lítil útgáfa af ferðasögu
Jæja nú er þreytan farin að mestu . Eins og flestir vita þá höfum við krakkarnir verið á íslandi, við höfðum það rosalega gott og gaman. Krakkarnir voru fyrstu 2 vikurnar með pabba sínum og fóru meðal annars í Bláa lónið og svo keyrðu þau og skoðuðu Geysi og Gullfoss. Ég kom 5 dögum áður en ég átti að fá krakkana aftur og var bara í rólegheitum með Ömmu, Afa og Mömmu. Ég fór á lokasýninguna hjá Ladda eða það átti að vera lokasýning en þetta er búið að vera svo vinsælt hjá kallinum að hann verður að hafa nokkrar sýningar í ágúst
. Þetta var rosalega skemmtileg sýning fannst mér allavega, ég söng og hló eins og vitleysingur. Ég fór með Mömmu, Ármanni og Röggu og þau sátu hinu megin í salnum og ég held að ég hafi litið rosalega skelfilega út því að maðurinn sem sat við hliðina á mér ríg hélt í dömuna við hliðina á sér. Það lá við að hann sæti í fanginu á henni
.
En semsagt þá hitti ég krakkana á föstudegi og svo fórum við upp á skaga til Óla, Möggu og Ingu Birnu og höfðum það rosalega gaman með þeim. (Fyrir fólk sem ekki veit hver þau eru þá er Magga fyrsti íslendingurinn sem ég kynntist hér í Noregi ´97 og Óla stuttu eftir)
Ég veit ekki hverjir hafa áhuga á að lesa alla ferðasögu mína svo ég stytti hana pínu .
Allavega þá fór ég norður til Heiðu og co. Það var alveg rosalega kósí. Við fórum þrisvar í sund, en eftir fyrstu sundferð þá varð mér ljóst að ég yrði að kaupa mér nýjan sundbol eða vera með allt til sýnis að framan ef þið skiljið hvað ég meina . Svo fórum við líka einu sinni í bíó og öllum fannst það rosalega gaman fyrir utan Róbert, hann náði ekki alveg því sem var að gerast og leiddist bara. (Vorum á Evan Almighty, held að þetta sé skrifað svona
). En þegar leið okkar lá suður aftur var stoppað í Húsafelli og fellihýsið reist upp og sofið þar í eina nótt áður en við drifum okkur í bæinn til að skipta um föt fyrir skírnina hjá honum Daníel Magna(rosaleg dúlla þessi strákur eins og bróðir hans).
Pabbi grillaði fyrir okkur á mánudeginum áður en við fórum út aftur og var það rosalega gott, íslenskt lambakjöt er miklu betra en norskt nokkurn tíman. Þannig að þið skiljið þá borða ég bara svín og kjúkling hér í norge + pylsur .
Nú þarf ég að hætta Rakel er að fara til vinkonu sinnar sem hún hefur ekki séð í mánuð og ég þarf að fylgja henni, það er full langt fyrir minn smekk ennþá að hún fari ein nefnilega .
Bless í bili.
Kossar og knús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.7.2007 | 16:02
komin úr sumarfríi
Jæja þá er sumarfríið mitt á Íslandi búið en er samt ennþá í sumarfríisskapi. Ætla þó að reyna að skrifa eitthvað hér fljótlega. Ætla bara að láta vita að það þýðir lítið að KLUKKA mig. Ég nenni því ekki
Ég var svo þreytt þegar ég kom til norge og þreytan er ekki alveg farin úr mér. Skrifa þegar hún er farinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.7.2007 | 13:25
Sumarfrí
Vildi bara láta vita að ástæðan fyrir því að ég blogga ekki þessa dagana er sú að ég er í SUMARFRÍI á Íslandi og ætla ekki að eyða tímanum í að blogga. Blogga frekar þegar ég er kominn heim til Norge . En það er 18 júlí.
Kveðja frá einni í sumarfríi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.6.2007 | 12:45
Slökkviliðsbíll
Mér varð hugsað til þess að móðir mín er ekki manneskja sem ber fréttir af ættingjum á milli. Ég hef stundum ekki fengið fréttir fyrr en allt er yfirstaðið. T.d. þegar Día eignaðist yngri strákinn þá frétti ég það viku seinna og ég vissi ekki einu sinni að hún hefði verið ólétt . En ég ætla nú ekki að skjóta meir á hana móður mína, hún er yndisleg.
Það sem ég ætlaði að tala um er hún dóttir mín. Á þriðjudegi áður en hún fór til íslands var hún að leika sér í leikskólanum sem er við hliðina á húsinu sem við búum í. Hún var þar með Róbert og vinkonu sinni sem heitir Carmen. Þau voru að klifra í hinum og þessum trjám sem eru á leikskólalóðinni og allt í lagi með það. En allt í einu kemur Róbert til Olaf(maðurinn sem við leigjum hjá) og segir að Rakel sé föst upp í tré og komist ekki niður, Olaf sendir Róbert upp til mín og biður hann að segja mér að koma. En Róbert segir mér að Olaf þurfi hjálp, svo að ég klæði mig í skó í rólegheitum (ég vissi ekkert um Rakel). Svo þegar ég kem út þá mæti ég nágrannanum á harðahlaupum og yfir girðinguna í leikskólann. Ég elti og sé þá Róbert, Olaf og Habba upp í stiga við eitt tréð. Og þá sé ég að það er Rakel sem er upp í tré og það eru 10 metrar upp til hennar, stiginn sem Olaf hafði fengið lánaðan hjá nágrannanum náði ekki upp og tréð var svo mjótt þar sem Rakel var að við þorðum ekki að klifra upp því það hefði getað brotnað undan þunga okkar.
Habbi hringdi því í neyðarlínuna..... Maðurinn sagði á hinum endanum að hann hefði heyrt um ketti upp í tré en aldrei 7 ára gamla stelpu. Og hann sendi slökkviliðsbíl með 6 slökkviliðsmönnum, komu þeir með sírenum og látum. (ég fór ekkert smá hjá mér) Voru þeir með stiga sem ekki þurfti að styðjast við tréð og klifraði einn þeirra upp og bar prinsessuna mína niður.
Ég hef aldrei verið jafn hrædd um prinsessuna mína.
Og ég held að hún hafi lært að klifra ekki svona rosalega hátt, en hver veit. Krakkar klifra upp um allt, ég gerði það allavega .
Vildi bara deila þessu með ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.6.2007 | 16:35
RIGNING
Í dag hefur rignt látlaust síðan kl 10 í morgunn. Ég hætti mér nú út samt, tók með regnhlíf en rigninging var frekar mikil svo að frá hnjám og niður var ég gegnblaut þegar heim kom. En svo mundi ég að ég var neydd til að fara út aftur því að kennarinn hennar Rakel Maríu hafði sent mér sms um að það væru pappírar klárir í skóladagheimilinu sem ég varð náttúrulega að ná í. Svo að ég lagði aftur af stað (er nefnilega ekki með bíl). Svo að ég held að ég haldi mig inni þangað til það hættir að rigna, nema ég verði keyrð í bíl .
Svo að nú sit ég hér í sófanum með tölvuna í fanginu, kertaljós hingað og þangað um stofuna og hef það rosa kósý .
Og eitt í viðbót, letin hefur náð hámarki núna svo að ég hætti bara
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2007 | 15:51
Leti
Afhverju er maður svona geðveikt latur við að þrífa þegar maður loksins hefur nægan tíma til þess?
Ég meina, ekki er ég í vinnu vegna sinaskeiðsbólgu og ætti að hafa nægan tíma til að þrífa og svo leiðis. En eftir að krakkarnir fóru þá nenni ég bara ekki neinu. Jú ég hef farið út með ruslið og tekið pínu til í eldhúsinu. Svo að það er eins gott að enginn komi í heimsókn til mín, hef nefnilega ekki ryksugað síðan krakkarnir fóru og er sandurinn í anddyrinu þar ennþá og sullu sletturnar þeirra undir eldhúsborðinu
. En ég er staðráðin í því að taka til og þrífa áður en ég fer til íslands á mánudaginn svo að allt verði hreint og fínt áður en við komum heim aftur.
Ég á eiginlega að taka því rólega út af hendinni en það eru takmörk fyrir því hvað maður getur lifað í miklu drasli .
En ég verð nú bara að segja að þetta internet er rosalegur tímaþjófur, ég er búinn að hafa það í 3 daga og er orðinn alveg húkt. Meiri vitleisan.
Hitinn hérna er alveg rosalegur, kíkti á hitamælinn í dag og þá var hann 24 stig í skugga, sem betur fer þá blæs svolítið þannig að maður kæfist ekki. En ég er orðinn þokkalega brún, svo að ég held að ég þurfi nú ekkert að fara til sólarlanda, get bara verið hér í norge .
Oftast þegar ég hitti nýtt fólk hér í noregi og er búinn að tala við það í pínu stund, þá er ég spurð "hvaðan úr noregi kemurðu?" og þegar ég segi að ég er ekki frá noregi, ég kem frá lítilli eyju i vestur. Þá verður fólk eitt spurningarmerki í framan og kvikindið sem ég er þá byrja ég að hlæja og segji að eyjan heiti Ísland. Og viðbrögðin eru yfirleytt, ertu að grínast, ertu alveg viss? Nei ég er ekki að grínast og já ég er alveg viss. Ég ætti að vita frá hvaða landi ég er. Fólki finnst nefnliga ég hafi svo blandaða hreymi að það eigi erfitt að með staðsetja mig. Svo að eiginlega er þetta gullið tækifæri til að plata fólk upp úr skónum
´
Nú eru bara 5 dagar þangað til ég kem til íslands.
Jibbý
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.6.2007 | 19:41
Ein og yfirgefin
Eru ekki englarnir mínir sætir
. Þau eru á Íslandi með pabba sínum og skemmta sér konunglega þar. Þau fóru á föstudaginn og í dag er þriðjudagur og mér er farið að finnast ég heldur ein og yfirgefin
. Sem betur fer er ég líka að koma til íslands og það bara núna á mánudaginn. Og ca viku eftir að ég kem þá stingum við krakkarnir af til Heiðu frænku á norðulandinu. Rakel er nefnilega búinn að planleggja það í næstum hálft ár
.
Síðan þetta er bara prufa hjá mér þá verður þetta ekki lengra í dag. Skrifa aftur á morgunn. Ha det bra både venner og familie. Kyss og klem
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar